Fréttir
  • Varnargarður við brúna yfir Jökulsá á Fjöllum í Öxarfirði
  • Rof og garðar við Jökulsá við Grímsstaði
  • Rof og garðar við Jökulsá í Öxarfirdi
  • Bygging varnargarða við brýrnar yfir Jökulsá á Fjöllum
  • Bygging varnargarða við brýrnar yfir Jökulsá á Fjöllum
  • Bygging varnargarða við brýrnar yfir Jökulsá á Fjöllum
  • Bygging varnargarða við brýrnar yfir Jökulsá á Fjöllum
  • Bygging varnargarða við brýrnar yfir Jökulsá á Fjöllum
  • Bygging varnargarða við brýrnar yfir Jökulsá á Fjöllum
  • Yfirlitsmynd
  • Holuhraun 29. ágúst
  • Holuhraun 29. ágúst
  • Holuhraun 1. september
  • Holuhraun 3. september
  • Holuhraun 4. september
  • Holuhraun 4. september
  • Holuhraun 5. september
  • Holuhraun 5. september
  • Holuhraun 5. september
  • Holuhraun 5. september
  • Holuhraun 5. september
  • Holuhraun 6. september
  • Holuhraun 6. september
  • Holuhraun 6. september
  • Holuhraun 8. september
  • Holuhraun 8. september
  • Holuhraun 8. september
  • Holuhraun 10. september
  • Holuhraun 11. september
  • Holuhraun 13. september
  • Holuhraun 13. september
  • Holuhraun 13. september
  • Holuhraun 12. september
  • Holuhraun 21. september
  • Holuhraun 14. september
  • Holuhraun 15. september
  • Holuhraun 15. september
  • Holuhraun 15. september
  • Holuhraun 18. september
  • Holuhraun 16. september
  • Holuhraun 15. september
  • Holuhraun 22. september
  • Hraunið 23. september

Sérstakir varnargarðar komnir upp við brýrnar yfir Jökulsá á Fjöllum

garðarnir settir upp til að verja mannvirkin þurfi að veita flóði framhjá brúnum

26.8.2014

Búið er að setja upp varnargarða við brýrnar yfir Jökulsá á Fjöllum við Grímsstaði og í Öxarfirði til að varna því að flóð sem færi utan við brýrnar nái að grafa undan akkerum hengibrúnna og stöplum þeirra.


Staðsetningu varnargarðanna og þar sem vegir verða rofnir komi til flóðs má sjá á kortunum sem fylgja þessari frétt. 

Komi til flóðs sem verður stærra en þeir u.þ.b. 3000 m3/sek sem brýrnar ráða við verða vegirnir rofnir vestan megin í tilviki brúarinnar í Öxarfirði en beggja vegna ár í tilfelli brúarinnar á Hringveginu við Grímsstaði. Við þær aðstæður þarf að verja akkeri hengibrúnna að vestanverðu, þar sem vírarnir eru festir í jörð, og stöplana, fyrir því flóðvatni sem kæmi þá að mannvirkinu utanfrá þ.e.a.s. sem ekki er í hinum hefðbundna árfarvegi. Því hafa verið byggðir varnargarðar til að verja mannvirkin úr þeirri átt.

Tæki munu verða á staðnum eða nærri til að rjúfa vegina komi til goss og flóðs. En varnaraðgerðum er þá lokið við þessar brýr vegna ástandsins undir Bárðarbungu og Dyngjujökli. Engar ráðstafanir eru gerðar við brúna yfir Jökulsá á Fjöllum við Upptyppinga.







24. september, myndum bætt við frá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands.








































































































































































































































































































































































































Brúin yfir Jökulsá á Fjöllum við Grímsstaði:
Rof og garðar við Jökulsá við Grímsstaði






















Brúin yfir Jökulsá á Fjöllum í Öxarfirði:
Rof og garðar við Jökulsá í Öxarfirdi